Hafin er vinna við gerð fjárhagsáætlunar Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2013. Því er auglýst eftir erindum, umsóknum, tillögum og ábendingum íbúa,
félagasamtaka og fyrirtækja í Dalvíkurbyggð um mál sem varða gerð fjárhagsáætlunar.
Þeir aðilar sem vilja koma með erindi, umsóknir, tillögur og/eða ábendingar er varða næsta starfs- og fjárhagsár Dalvíkurbyggðar er bent á að skila þeim
skriflega í þjónustuver bæjarskrifstofu eða senda í tölvupósti til sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs fyrir 11. september 2012.
Vakin er athygli á að á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, www.dalvikurbyggd.is, er að finna reglur Dalvíkurbyggðar er gilda almennt um styrkveitingar. Þar kemur fram m.a. hvaða gögn og upplýsingar þurfa að fylgja með ef um er ræða erindi og/eða umsóknir um styrki, sjá nánar
http://www.dalvik.is/Stjornsysla/Fjarmala--ogstjornsyslusvid/Reglugerdir-og-samthykktir/Fjarmala-ogstjornsyslusvid/.