Félagsþjónustur Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar auglýsa eftir stuðningsfjölskyldum til þess að taka á móti barni á heimili sitt í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu og/eða styrkja stuðningsnet barns, eftir því sem við á. Um er að ræða úrræði veitt á grundvelli laga um málefni fatlaðs fólks og barnaverndarlaga.
Hæfniskröfur:
- Reynsla, færni og áhugi á starfi með börnum og unglingum.
- Jákvætt viðhorf til barna og unglinga og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Vammleysi s.s. gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfi með börnum og unglingum.
- Aðeins þeir sem eru 20 ára og eldri koma til greina.
- Hreint sakavottorð.
Umsókn skal fylgja:
- Heilbrigðisvottorð allra heimilismanna, 18 ára og eldri.
- Heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá allra heimilismanna eldri en 15 ára (sérstakt eyðublað).
- Yfirlit yfir starfsferil umsækjanda, menntun og reynslu af starfi með börnum.
- Upplýsingar um önnur leyfi eða verkefni samkvæmt barnaverndarlögum og/eða lögum um málefni fatlaðs fólks ef við á.
Nánair upplýsingar gefa
Helga Helgadóttir, félagsþjónustu Fjallabyggðar í síma 464-9100
Þórhalla Karlsdóttir, félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar í síma 460-4900