Vikuna 18.- 21. maí verður almenn fegrunarvika í Dalvíkurbyggð. Starfsfólk Vinnuskólans mun fara um þéttbýli Dalvíkurbyggðar á miðvikudag og föstudag og fjarlægja garðaúrgang sem komið hefur verið að lóðamörkum. Athugið að einungis verður tekinn sá úrgangur sem er í ruslapokum og greinar og afklippur sem bundnar eru í knippi eða auðvelt er að fjarlægja.
Eins viljum við skora á íbúa Dalvíkurbyggðar sem og eigendur fyrirtækja að fegra og snyrta í kringum sig þessa viku. Tökum nú höndum saman og gerum fallega byggð fallegri!
Minni á að þeir sem kjósa að losa sjálfir sinn garðaúrgang á gámasvæði að losa það í réttann gám og losa úrganginn úr plastpokunum!!
Skráning lóðasláttar er hafin hjá ellilífeyrisþegum og öryrkjum. Hægt er að sækja um slátt á bæjarskrifstofunni eða hjá Umsjónarmanni vinnuskóla í síma 466-1224 - 8640013, vinnsk@dalvik.is
Gangi ykkur vel og gleðilegt sumar!
Umsjónarmaður vinnuskólans
Sverrir Þorleifsson