Þriðjudaginn 7. febrúar 2017 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar. Klúbbfélagar fóru yfir veðurspá janúarmánaðar. Snjór var heldur fyrr á ferðinni en reiknað var með en kom engu að síður þannig að ágæt sátt var um spána. Nýtt tungl kviknaði 28. jan. í NV og er það ráðandi fyrir veðurfar í þessum mánuði. Síðan kviknar nýtt tungl 26. febrúar í S. og er góutungl.
Nokkrir draumar klúbbfélaga benda til þess að veður í febrúar verði svipað og það var í janúar. Vindar blási úr öllum áttum og hitastig verði hátt miðað við árstíma. Í lok mánaðar má gera ráð fyrir einhverri rumpu, sem þó stendur stutt.
Veðurvísa feb. og mars
Febrúar á fannir
þá læðist geislinn lágt.
Í mars þá blæst oft biturt,
en birtir smátt og smátt
Með góðum kveðjum,
Veðurklúbburinn á Dalbæ