Leikskólinn Kötlukot í Árskógarskóla auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf

Leikskólinn Kötlukot í Árskógarskóla auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf

Leikskólinn Kötlukot í Árskógarskóla auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf vinnutími er 08:00 – 16:00. Staðan er laus frá janúar 2025 og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.

Leikskólinn Kötlukot er lítill leikskóli í samreknum grunn- og leikskóla í Árskógi, Dalvíkurbyggð sem heitir Árskógarskóli. Kötlukot vinnur eftir aðferðum uppeldisstefnunnar Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla og stærðfræði.


Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna og verkefnum sem því tengjast.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs.
  • Tekur þátt í þróunarverkefnum leikskólans.
  • Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans.
  • Samstarf við aðrar stofnanir og sérfræðinga.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla á leikskólastigi og umönnun barna æskileg.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 https://www.rannis.is/media/islenskukennsla/Evropski-tungumalaramminn.pdf
  • Hreint sakavottorð.

Fríðindi í starfi

  • Betri vinnutími
  • Heilsustyrkur
  • Lokað haust og vetrarfrí og milli jóla og nýárs en starfsmenn vinna þau frí af sér.

 

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi og er þá greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi. Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og hæfniskröfur áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Við hvetjum áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna.
Sótt er um starfið í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af leyfisbréfi, ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og stutt persónuleg kynning.

Umsóknafrestur er til og með 10. janúar 2025
Frekari upplýsingar veitir: Helga Lind Sigmundsdóttir deildarstjóri Árskógarskóla/Kötlukots í síma 460-4971 eða á netfangið helga.lind@dalvikurbyggd.is

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan.
Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.