DANSAÐU FYRIR MIG

Í fyrra sagði fjörutíu og átta ára, þriggja barna faðir mér að hann ætti sér draum um að búa til dansverk og flytja það í heimabæ sínum, Akureyri. Ármann Einarsson er 172 cm. á hæð, með óvenjulega framstæða bumbu og einstaklega föðurlegt skopskyn. Ármann hefur aldrei stundað dans en á þó Íslandsmet í þrístökki drengja sem ekki hefur verið slegið síðan 1979. Ármanni dreymir um að dansa.

Dansaðu fyrir mig ögrar væntingum og fyrirfram gefnum hugmyndum um dans. Breski danshöfundurinn Brogan Davison og tónlistar- og heimamaðurinn Ármann Einarsson munu saman leita svara við spurningunni: „Er dans fyrir alla?“

Dansaðu fyrir mig er 45 mínútna löng sýning sem lofar hlátri, einlægni en fyrst og fremst dansi.

Sýningar // Enginn aðgangseyrir // Takmarkað sætaframboð.

26. Apríl. 20.00. Berg Menningarhús, Dalvík.

Miðapantanir í Bergi : dansadurfyrirmig@gmail.com

Dansaðu fyrir mig er styrkt af Menningarráði Eyþings, Ungmenna-Húsinu Rósenborg, Berg menningarhús og Menningarhúsinu Tjarnarborg.

Danshöfundur: Brogan Davison.
Dansarar: Brogan Davison and Ármann Einarsson.
Dramatúrgur: Pétur Ármannsson.
Ljósmyndun: Finnbogi Sigurður Marrinosson.
Grafískur hönnuður: Hjálmar Baldursson.