Dalvíkurbyggð leitar eftir aðila/aðilum til að annast rekstur á kaffihúsi í húsnæði Menningarhússins Bergs.
Góð aðstaða fyrir veitingarekstur á jarðhæð Menningarhússins Bergs. Kaffihúsið er sjálfstæð eining en jafnframt mikilvægur hluti af fjölbreyttri þjónustu Dalvíkurbyggðar.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent á skrifstofu Dalvíkurbyggðar frá og með 5. nóv. 2024 og skal tilboðum skilað á skrifstofu Dalvíkurbyggðar fyrir kl. 11:00, 29. nóv. 2024.
Ef óskað er eftir því að fá útboðsgögn send með tölvupósti, skal senda beiðni þess efnis á Gísla Bjarnason, sviðsstjóra fræðslu – og menningarsviðs gisli@dalvikurbyggd.is
Nánari upplýsingar um framkvæmd útboðsins eða útboðsgögn, hafið samband við Gísla Bjarnason.