Dalvíkurbyggð keppir í Útsvarinu

Næstkomandi laugardag, 15. september, keppir Dalvíkurbyggð í Útsvarinu, spurningarkeppni RÚV. Andstæðingar Dalvíkurbyggðar í þessari fyrstu umferð eru Höfn í Hornafirði.

Lið  Dalvíkurbyggðar er sem fyrr skipað þeim Klemenzi Bjarka Gunnarssyni, Magna Þór Óskarssyni og Elínu Björk Unnarsdóttur.

Keppnin er haldin á laugardegi að þessu sinni. Þess má til gamans geta að liðið mun fá dyggan stuðning úr sjónvarpssal en stelpur úr 5. flokki kvenna hjá Dalvík-Reyni verða boltasækjarar á landsleik Íslands og Norður-Írlands sem verður þarna fyrr um daginn og ætla síðan að mæta í sjónvarpssal til að styðja sitt fólk.

Við óskum þeim öllum góðs gengis.