Dalvíkurbyggð auglýsir til sölu Gamla skóla.

Dalvíkurbyggð auglýsir til sölu Gamla skóla.

Til sölu húsnæði gamla grunnskólans í Dalvíkurbyggð að Skíðabraut 12 , ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber þar með talið tilheyrandi lóðarréttindum.
Fyrir liggur ástandsúttekt EFLU verkfræðistofu dags. 20.05.2022, og er brýnt fyrir tilvonandi kaupendum að kynna sér efni hennar til hlýtar. Engar endurbætur hafa átt sér stað síðan úttektin fór fram.
Gamli skóli við Skíðabraut er í sameiginlegri eigu ríkis (72%) og sveitarfélagsins (28%). Eignin er talin hafa varðveislugildi fyrir svæðið. Af þeim sökum er mikilvægt að ráðist verði í endurgerð eignarinnar sem næst upprunalegri mynd sé þess kostur út frá notagildi hennar. Gerð er krafa um að bjóðendur hafi fjárhagslegt bolmagn til að ljúka nauðsynlegum framkvæmdum og endurbótum á eigninni þannig að hægt sé að koma eigninni í varanleg not eins fljótt og auðið er.
Með tilboði í eignina þarf að fylgja greinargerð þar sem fram kemur: - Áætlun um endurbyggingu. - Áætlaður verktími, sundurliðað eftir verkþáttum. - Áform og framtíðarnotkun hússins.

Nánari upplýsingar má finna á: Gamli barnaskólinn, 620 Dalvík (eignaver.is)