Dalvíkurbyggð auglýsir lóðir til úthlutunar við Svarfaðarbraut 19-21 og 23-25

Dalvíkurbyggð auglýsir lóðir til úthlutunar við Svarfaðarbraut 19-21 og 23-25

Svarfaðarbraut 19-21 og 23-25 Auglýsing lóða

Dalvíkurbyggð auglýsir lausar til úthlutunar parhúsalóðir við Svarfaðarbraut 19-21 og 23-25.
Um er að ræða tvær lóðir þar sem heimilt er að byggja parhús á einni hæð skv. deiliskipulagi. Leyfilegt byggingarmagn á hvorri lóð er 340 m2.

Úthlutunarskilmála má nálgast hér.

Lóðablöð má nálgast hér:
Svarfaðarbraut 19-21 
Svarfaðarbraut 23-25 

Umsókn skal skilað inn í gegnum þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar fyrir 9.september 2024.

Ef engar umsóknir berast fyrir þann tíma verða lóðirnar settar á lista yfir lausar lóðir í Dalvíkurbyggð og verður úthlutað til þeirra aðila sem fyrstir sækja um skv. skilmálum í lóðaúthlutunarreglum sveitarfélagsins.