Dalvíkurbyggð auglýsir Húsabakka í Svarfaðardal til sölu

Um er að ræða tvær byggingar sem áður voru notaðar undir rekstur Húsabakkaskóla, sem var grunnskóli Svarfaðardalshrepps fram til ársins 2004. Húsabakki er í fallegu umhverfi rétt við Friðland Svarfdæla skammt sunnan Dalvíkur.

Á staðnum eru tvö hús. Annað húsið er byggt árið 1953 og er skráð 675,8 m2 að stærð og hitt húsið er byggt 1966 og er skráð 556,4m2 að stærð. Húsin henta vel til ýmisskonar reksturs og eru nýtt í ferðaþjónustu að stærstum hluta í dag en í húsunum eru herbergi af ýmsum stærðum, íbúðir fyrir staðarhalda, eldhús, matsalur, fundarsalir og gott útisvæði.

Við Húsabakka er einnig tjaldsvæði, félagsheimilið Rimar og sundskáli sem möguleiki er að semja um leigu á samhliða kaupum á Húsabakka.

Eignin er laus til afhendingar þann 15. september 2016

Óskað er eftir tilboðum í eignina og er tilboðsfrestur er til miðvikudagsins 31. ágúst 2016 en það er Hvammur Eignamiðlun sem tekur við tilboðum og veitir nánari upplýsingar í 466 1600 og á
kaupa@kaupa.is

Dalvíkurbyggð áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Hvamms Eignamiðlunar