Dalvíkurbyggð auglýsir eftir eigendum gáma og annarra lausafjármuna

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir eigendum gáma og annarra lausafjármuna

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir eigendum gáma og annarra lausafjármuna

Dalvíkurbyggð óskar eftir því að eigendur gáma og annarra lausfjármuna austur á Sandi og austan við Gámasvæði hafi samand við Eigna- og framkvæmdadeild sem allra fyrst og geri grein fyrir eigum sínum.

Nú stendur til að fara í hreinsunarátak á svæðinu og því er mikilvægt að þeir sem telja sig eiga lausafjármuni á þessu svæði láti vita af því svo hægt sé að fara yfir ástand og skráningu þeirra og henda því sem eftir stendur.

Þeir sem telja sig eiga eignir á svæðinu eru beðnir að hafa samband við Helgu deildarstjóra í síma 853-0220 eða á helgairis@dalvikurbyggd.is fyrir 16. september nk.

Meðfylgjandi eru myndir af svæðinu sem um ræðir.

Með von um góð og snör viðbrögð

Starfsmenn Eigna- og framkvæmdadeildar