Samkvæmt ákvörðun Sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 29. nóvember sl. hefur verið fallið frá niðurrifi Böggvisstaðaskála. Því eru auglýst til leigu geymslubil í skálanum samkvæmt meðfylgjandi gjaldskrá sem má sjá hér að neðan.
Umsóknir og fyrirspurnir um geymslubil skulu sendar á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is
Gjaldskrá 2022
Fyrir leigu á geymsluaðstöðu í Böggvisstaðaskála
- gr.
Gera skal leigusamning, þar sem upphæð leigu er tiltekin og umgengisreglur um leigu á geymsluaðstöðu í Böggvisstaðaskála. Leigusamninginn skal endurnýja á hverju ári. Heimilt er að framreikna leigugjaldið samkvæmt gildandi gjaldskrá á hverjum tíma hafi leigusamningi ekki verið sagt upp af samningsaðilum.
- gr.
Gjaldskrá miðast við byggingarvísitölu í sept. 2022. (109,0 stig) sem uppreiknast í september ár hvert miðað við gildandi byggingavísitölu.
Leigugjald á mánuði
|
Fast gjald
|
Fyrir eitt bil
|
15.000
|
Tímagjald vegna aðstoða starfsmanns Dalvíkurbyggðar á dagvinnutíma er kr. 12.500.
3.gr
Leigan skal greidd fyrir fram mánaðarlega og mun leigusali senda leigutaka reikning samkvæmt ákvæðum í leigusamningi og samkvæmt gildandi gjaldskrá á hverjum tíma.
Samþykkt í byggðaráði Dalvíkurbyggðar þann 24. nóvember 2022
Samþykkt í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 29. nóvember 2022
Gjaldskrá þessi öðlast þegar gildi við samþykkt sveitarstjórnar.