Bakkabræður vígðir í Bögg.

Bakkabræður vígðir í Bögg.

Skemmtilegu sögurnar um Bakkabræður þekkja flestir, en þeir bræður, Gísli, Eiríkur og Helgi voru frá bænum Bakka í Svarfaðardal.
Síðastliðinn vetur hönnuðu nemendur í Dalvíkurskóla þessa ágætu bræður. Smíðakarlarnir eru í fullri stærð og á þeim má finna QR kóða sem hægt er að
skanna með myndavél úr síma til að hlusta á skemmtisögur af þeim bræðrum. Þau Sunneva Björk Aradóttir, Hörður Högni Skaftason og Bríet Þóra Karlsdóttir,sigurvegarar Dalvíkurskóla í stóru upplestrarkeppninni sáu um upplesturinn og Bil Guðröðardóttir sem útskrifaðist úr Dalvíkurskóla 2022 teiknaði karlana með
aðstoð Skapta myndmenntakennara. Margir nemendur komu síðan að verkefninu á þemadögum sem við vorum með um heimabyggðina vorið 2024.
Nú hafa þeir bræður strokið úr Dalvíkurskóla og hafa komið sér fyrir á göngustígnum góða fyrir ofan skógarreitinn Bögg.
Fallegir tréhringir prýða einnig nokkur tré í Bögg, en á þeim eru teiknaðar myndir úr sögunum eftir nemendur.
Þetta var skemmtilegt samvinnuverkefni margra nemenda og óhætt að segja að verkefnið samþætti margar námsgreinar, svo sem íslensku, sköpun,
samfélagsfræði, upplýsingatækni , náttúrufræði, útivist og hreyfingu. Miðvikudaginn 28.08 voru þeir bræður afhjúpaðir við hátíðlega athöfn í Bögg;
nemendur í 4. bekk leiddu söng um Bakkabræður sem Lovísa María Sigurgeirsdóttir samdi textann við, Friðrik Arnarson skólastjóri hélt stutta tölu og
síðan var QR kóðinn prófaður og allir hlustuðu á söguna. Við hvetjum bæjarbúa og gesti að fá sér göngutúr um stígana góðu ofan við og inni
í Bögg, heilsa upp á bræðurna og hlusta á skemmtisögur af þeim. Bakkabræður munu dvelja við stígana eitthvað fram á haust, en þá munu þeir flýja
í hús og bíða af sér veturinn. Með hækkandi sól næsta vor munu þeir eflaust koma sér fyrir aftur á göngustígnum .


Kveðja úr Dalvíkurskóla