Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðarlögum sbr. auglýsingu nr. 187/2010 í Stjórnartíðindum.
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög:
Árneshreppur (Norðurfjörður)
Sveitarfélagið Skagaströnd
Blönduósbær
Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur, Hauganes)
Grýtubakkahreppur (Grenivík)
Borgarfjarðarhreppur (Borgarfjörður eystri)
Seyðisfjörður
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindur reglur einnig aðgengilegar. Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2010.
Fiskistofa, 4. mars 2010.