Ágústa Kristín Bjarnadóttir ráðin leikskólastjóri

Ágústa Kristín Bjarnadóttir ráðin leikskólastjóri

Ágústa Kristín Bjarnadóttir, hefur verið ráðin sem leikskólastjóri á Krílakoti. Ágústa er með MT í kennslufræðum frá HA með áherslu á stjórnun og forystu. Ágústa hefur starfað við leikskólann á Krílakoti frá 2008, fyrst sem deildarstjóri og frá 2014 sem aðstoðarleikskólastjóri. Ágústa tekur til starfa sem leikskólastjóri 1. september 2024.

Myndlýsing ekki til staðar.