Afsláttur fasteignaskatts 2008

Afsláttur fasteignaskatts 2008
  DALVÍKURBYGGÐ

 

Afsláttur fasteignaskatts 2008

Auglýsing um reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar frá 04.12.2007.

Til að geta átt rétt á afslætti af fasteignaskatti samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar hverju sinni þarf meðal annars eftirtöldum skilyrðum að vera fullnægt:

  • Umsækjandi þarf að vera 67 ára eða eldri eða 75% öryrki.  Ellilífeyrisþegar geta fyrst átt rétt á afslætti hafi þeir orðið 67 ára á næsta ári á undan álagningarári.  Þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári eiga rétt á hlutfallslegri lækkun frá því að örorkumat tók gildi.
  • Umsækjandi þarf sjálfur að búa í íbúðarhúsnæðinu.  Þegar um hjón eða sambúðaraðila er að ræða nægir að annað hjóna eða sambúðaraðila fullnægi því skilyrði að vera elli- eða örorkulífeyrisþegi. 

Sú breyting hefur verið gerð að  ekki þarf að sækja um afslátt fasteignaskatts þar sem framkvæmd útreiknings verður sjálfvirkur í gegnum álagningarkerfi fasteignagjalda, Landskrá fasteigna.  Vegna útreiknings á afslætti skal liggja fyrir sem fyrr staðfest skattframtal af skattstjóra og örorkumatsvottorð ef við á.

Afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega er tekjutengdur sem hér segir:

   a) Einstaklingur með tekjur allt að kr. 1.518.008,-

   b) Hjón og sambýlisfólk með tekjur allt að kr. 2.095.049,-

Varðandi tekjuviðmið er litið til tekna eins og þær eru samkvæmt tekju- og útsvarsstofni sem og til fjármagnstekna.

Hámarksafsláttur af fasteignaskatti er kr. 40.700,-.    Afslátturinn verður þó aldrei hærri en álagður fasteignaskattur.

Reglurnar í heild sinni er hægt að nálgast á http://www.dalvik.is/ eða í þjónustuveri bæjarskrifstofu á 1. hæð í Ráðhúsinu á Dalvík.

 

Fjármála- og stjórnsýslustjórinn í Dalvíkurbyggð

Guðrún Pálína Jóhannsdóttir