Afsláttur fasteignaskatts 2007
Auglýsing um reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar frá 21.11.2006.
Til að geta átt rétt á afslætti af fasteignaskatti samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar hverju sinni þarf meðal annars eftirtöldum skilyrðum að vera fullnægt:
- Umsækjandi þarf að vera 67 ára eða eldri eða 75% öryrki. Ellilífeyrisþegar geta fyrst átt rétt á afslætti hafi þeir orðið 67 ára á næsta ári á undan álagningarári. Þeir sem eru úrskurðaðir 75% öryrkjar á álagningarári eiga rétt á hlutfallslegri lækkun frá því að örorkumat tók gildi.
- Umsækjandi þarf sjálfur að búa í íbúðarhúsnæðinu. Þegar um hjón eða sambúðaraðila er að ræða nægir að annað hjóna eða sambúðaraðila fullnægi því skilyrði að vera elli- eða örorkulífeyrisþegi.
Sú breyting hefur verið gerð að ekki þarf að sækja um afslátt fasteignaskatts þar sem framkvæmd útreiknings verður sjálfvirkur í gegnum nýtt álagningarkerfi fasteignagjalda, Landskrá fasteigna. Vegna útreiknings á afslætti skal liggja fyrir sem fyrr staðfest skattframtal af skattstjóra og örorkumatsvottorð ef við á.
Afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega er tekjutengdur sem hér segir:
a) Einstaklingur með tekjur allt að kr. 1.399.086,-
b) Hjón og sambýlisfólk með tekjur allt að kr. 1.930.921,-
Varðandi tekjuviðmið er litið til tekna eins og þær eru samkvæmt tekju- og útsvarsstofni sem og til fjármagnstekna.
Hámarksafsláttur af fasteignaskatti er kr. 37.000,-. Afslátturinn verður þó aldrei hærri en álagður fasteignaskattur.
Reglurnar í heild sinni er hægt að nálgast á www.dalvik.is eða í þjónustuveri bæjarskrifstofu á 1. hæð í Ráðhúsinu á Dalvík.
Fjármála- og stjórnsýslustjórinn í Dalvíkurbyggð
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir