Næstkomandi fimmtudagskvöld 14.júní mun mótanefnd Hrings standa fyrir Tölt og skeiðmóti á Hringsholtsvelli. Mótið hefst kl 18:00.
Keppt verður í Tölti, 100m skeiði, 150m skeiði og 250m skeiði - rafræn tímataka.
Skráningar skulu berast á netfang félagsins: hringurdalvik@hringurdalvik.net Þar skal koma fram nafn hests, IS-númer og keppnisgrein, kennitala, símanúmer og nafn knapa.
Skráningu lýkur þriðjudaginn 12.júní kl 19:00. Skráningargjöld skulu greidd inn á reikning félagsins fyrir miðvikudag 13.júní kl 20:00.
Skráningargjöld: kr. 2.500 fyrir fyrstu skráningu kr. 2.000 fyrir næstu skráningar pr.knapa. Kennitala félagsins: kt. 540890-1029. Reiknisnúmer: 1177-26-175 - skýring
Mótanefnd Hrings.