Þroskaþjálfi eða uppeldismenntað fagfólk við íbúðakjarna og Skammtímavistun óskast. -umsóknarfrestur framlengdur-

Þroskaþjálfi eða uppeldismenntað fagfólk við íbúðakjarna og Skammtímavistun óskast. -umsóknarfrestur…

Þroskaþjálfi eða uppeldismenntað fagfólk við íbúðakjarna og Skammtímavistun:

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir lausnarmiðuðum, metnaðarfullum og drífandi þroskaþjálfa eða uppeldismenntuðu fagaðila við íbúðakjarna og skammtímavistun í 85% stöðuhlutfall til að sinna íbúum í sjálfstæðri búsetu/skammtímavistun. Um er að ræða framtíðarstarf í vaktavinnu og umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Samkomulagsatriði er um hvenær viðkomandi getur hafið störf. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.

Helstu verkefni:

  • Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta við íbúa (með mismikla stuðningsþörf), sem miðar að því að leiðbeina og aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf varðandi húshald eftir því sem þörf krefur með sjálfstæði og sjálfsbjörg í fyrirrúmi.
  • Sinnir faglegu starfi í samstarfi og samráði við þjónustunotendur og forstöðumann.
  • Gerð þjónustuáætlana fyrir notendur íbúakjarna og skammtímavistun og eftirfylgni þeirra.
  • Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, innan og utan heimilis.
  • Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa íbúakjarna og notendur Skammtímavistunar.
  • Jákvæð og uppbyggileg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur og samstarfsfólk.
  • Leiðbeina og aðstoða við atvinnu.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Hæfniskröfur:

  • Þroskaþjálfamenntun eða önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur.
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Íslenskukunnátta.
  • Bílpróf.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.

Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.

Umsóknarfrestur er til og með 26.júní 2024.

 

Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Sótt er um starfið í gegnum Þjónustugátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda.
Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og hæfniskröfur áskilur stjórnandi sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um starfið gefa; Þórhalla Franklín Karlsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, netfang: tota@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4900 og Hildur Birna Jónsdóttir forstöðumaður íbúðakjarna og skammtímavistunnar, netfang: hildurbj@dalvikurbyggd.is eða í síma 460-4927.

Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan.
Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.