Vinnuskólinn óskar eftir verkstjóra og flokkstjórum fyrir sumarið 2012.
Vinna verkstjóra felst í daglegum rekstri Vinnuskólans eins og að deila út verkefnum, hafa eftirlit með vinnu og verkefnastöðu, hafa umsjón með vinnutímum og skrá ýmis gögn sem tilheyra Vinnuskólanum.
Vinna flokkstjóra felst í umsjón með vinnu unglinga á aldrinum 14-16 ára, annast verkstjórn, leiðbeina og aðstoða krakkana í verkefnum Vinnuskólan
Viðkomandi þurfa að hafa góðan þroska til að umgangast unglinga, geta haldið uppi aga í hóp og stjórnað verkefnavinnu.
Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri.
Umsóknarfrestur er til 20. mars.
Nánari upplýsingar fást hjá Garðyrkjustjóra (Jón Arnar) í síma 898 3490.
Umsóknareyðublöð má nálgast í Þjónustuveri eða á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvik.is , rafræn eyðublöð.
Þeim skal skilað inn í Þjónustuverið, Ráðhúsinu.
Jón Arnar Sverrisson
Garðyrkjustjóri Dalvíkurbyggðar og umsjónarmaður Vinnuskólans.