Umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar auglýsir laus til umsóknar störf sumarstarfsmanna á eigna- og framkvæmdadeild. Starfsmenn starfa undir deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar.
Umsóknarfrestur er til 5. maí 2019
Starfstími er frá 1. júní til 31. ágúst 2019.
Hæfniskröfur
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Samskipta- og skipulagshæfni
- Góður kostur er að hafa bílpróf og dráttarvélapróf (minna vinnuvélanámskeið).
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á Mín Dalvíkurbyggð, http://min.dalvikurbyggd.is/login.aspx
Umsóknum um starfið skal fylgja ferilsskrá.
Allar nánari upplýsingar veitir Börkur Þór Ottósson sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar.