Íbúafundur verður haldinn í menningarhúsinu Bergi kl. 18:00 miðvikudaginn 22. nóvember.
Á fundinum verður farið yfir sorpmál í Dalvíkurbyggð og kynntar fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi sorphirðu ásamt nýjungum.
Fundarstjóri verður Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs.
Dagskrá fundarins:
- Helgi Pálsson rekstrarstjóri Gámaþjónustu Norðurlands
Árangur í flokkun með tilliti til minnkunar á sorpi til urðunar.
Söfnunarkerfi fyrir sorp.
Breytingar á sorphirðu í Dalvíkurbyggð 2018.
- Guðmundur H Sigurðsson framkvæmdarstjóri Vistorku
Af hverju við erum að flokka þ.e. loftslagsáhrif þess að flokka frekar en urða.
Lífrænn úrgangur og nýting á moltunni.
Græna trektin og söfnunarkerfið fyrir hana.
Leif Arnar boxin fyrir matarafganga.
Parísarsamningurinn og fleira.
- Þorsteinn K Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Fráveitukerfi Dalvíkurbyggðar.
- Almennar umræður og fyrirspurnir frá íbúum.
Fyrir hönd Dalvíkurbyggðar
Börkur Þór Ottósson
Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs