Frá því í mars á þessu ári hefur sérstakt veiðiátak á mink verið í gangi í Eyjafirði, á svæði sem nær yfir sveitarfélögin Dalvíkurbyggð, Arnarneshrepp, Hörgárbyggð, Eyjafjarðarsveit, Akureyrarkaupstað, Svalbarðsstrandarhrepp og Grýtubakkahrepp. Svæðið afmarkast við austan- og vestanverðan Eyjafjörð frá botni og til norðurs að Kaldbaki að austan og að Ólafsfjarðarmúla að vestan, þar með taldir þverdalir, Hörgárdalur, Öxnadalur og Svarfaðardalur. Nefnd á vegum umhverfisráðuneytisins hefur umsjón með veiðiátakinu og er tilgangur þess að kanna möguleika á útrýmingu minks á tveim svæðum á landinu, Snæfellsnesi og Eyjafirði, með það í huga að ráðast í landsátak í framhaldinu gefi niðurstaða tilefni til. Umhverfisstofnun hefur umsjón með veiðunum og hafa verið ráðnir veiðimenn til að sinna þeim. Samhliða veiðunum eru í gangi rannsóknir sem ætlað er m.a. að meta árangur veiðiátaksins og eru þær unnar af Náttúrustofu Vesturlands í samvinnu við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Talið er að veiðar hafi gengið vel það sem af er árinu og hefur stóraukinn fjöldi gildra verið lagður á svæðinu auk þess sem minkaleit með hundum hefur verið meiri en áður. Þrátt fyrir þessa auknu veiðar eru einhverjir minkar sem hafa komist undan og læður náð að gjóta. Nú í ágúst fara hvolpar sem komist hafa á legg að verða sýnilegir og því mikilvægt að fá upplýsingar um hvar þeir sjást. Því vilja þeir sem að veiðiátakinu standa fara þess á leit við bændur og almenning að þeir láti vita ef sést til minka á ofangreindu svæði. Hægt er að hafa samband Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar í síma 4607900 og láta vita af því.