Árskógarskóli auglýsir eftir umsjónarkennara fyrir 4.-7. bekk (100%) frá og með 1. ágúst 2022. Næsti yfirmaður er deildarstjóri skólans.
Árskógarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 18 börn á leikskólastigi og 29 nemendur í 1. – 7. bekk. Einkunnarorð skólans eru: Gleði – Virðing – Þrautseigja. Í grunnskólanum er samkennsla í tveimur umsjónarhópum og ein deild í leikskólanum. Mikið samstarf er á milli skólastiga. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu.
Starfssvið og helstu verkefni:
- Vinnur samkvæmt skólanámskrá, kennsluáætlunum og innra mati.
- Undirbýr kennsluáætlanir og endurmat.
- Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska.
- Foreldrasamstarf
- Hefur umsjón með námshóp og heimastofu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
- Starfsreynsla á grunnskólastigi.
- Hugmyndaríkur, jákvæður og sveigjanlegur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á samkennslu.
- Áhugi á notkun tækni í skólastarfi.
- Hreint sakavottorð.
Umsóknarfestur er til og með 16. júní 2022.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Sótt er um í gegnum Íbúagátt Dalvíkurbyggðar (dalvikurbyggd.is). Umsókn skal fylgja kynningarbréf og ferilskrá.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Frekari upplýsingar veitir Friðrik Arnarson, skólastjóri í síma 460 4983 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is.
Dalvíkurbyggð er tæplega 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi.
Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.