Jólatrésskemmtun 30. desember

Kvenfélagið Tilraun í Svarfaðardal heldur jólatrésskemmtun að Rimum laugardaginn 30. desember. Skemmtunin hefst kl. 14:00.

Að venju verður sungið og gengið í kringum jólatréð, lesin jólasaga og vonandi frétta jólasveinarnir af þessari samkomu og láta sjá sig. 

Kaffi, heitt súkkulaði og meðlæti. Því eru gestir vinsamlegast beðnir um að koma með brauð og smákökur sem þeir leggja til á sameignlegt kaffihlaðborð.

Enginn aðgangseyrir.

Nefndin