Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni - allir fánar á loft!
Kl. 11:00 17. júní hlaupið fer fram á íþróttavellinum á Dalvík (neðra svæðinu) í umsjón frjálsíþróttadeildar UMFS.
Skráning á staðnum fyrir hlaup og verðlaunaafhending að hlaupi loknu.
Kl. 13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Íþróttamiðstöð að Menningarhúsinu. Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega og taka með sér fána og veifur.
Kl. 13:30 Hátíðarstund í Menningarhúsinu Bergi
- Ávarp fjallkonunnar
- Hátíðarræða Sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar
- Leikhópurinn Lotta
- Tónlistaratriði
Það spáir karamellurigningu í kringum Berg
Að lokinni hátíðarstund við Berg:
- Hestamennska - Sveinbjörn Hjörleifsson og aðstoðarmenn hans teyma hesta undir börnum við Krílakot.
- Leiktæki í umsjón flokksstjóra Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar í kirkjubrekku -
- Sápubolti, vatnsrennibraut, hoppukastalar og fleira skemmtilegt.
Foreldrar athugið: það verður hægt að bleyta sig í sumum leiktækjum og því æskilegt að börnin hafi föt til skiptanna.
Myndlistasýning í Bergi opin frá 12 - 17.
Sigurveig Sigurðardóttir—málverk
Allir velkomnir.
Hátíðarkaffi - Barna– og unglinaráð knattspyrnudeildar UMFS selur hátíðarkaffi í safnaðarheimili Dalvíkurkirkju að lokinni hátíðarstund.
Verð 13 ára og eldri 1.500 kr, börn 6-12 ára 500 kr. Frítt fyrir börn 0-6 ára miðast við leikskólaaldur. Kaffið stendur til kl 17:00.
Kl. 18:30 - 21:00 Sundlaugarfjör í íþróttamiðstöðinni/sundlaug. , Dúndrandi tónlist og fatasund fyrir þá sem vilja! Gamli góði koddaslagurinn verður endurvakinn.
Allir velkomnir - frítt inn
Fríar pylsur og svali í boði við íþróttamiðstöðina í umsjón Ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar