Mótanefnd Hrings auglýsir Gæðingamót Hring sem jafnframt er úrtökumót v/ LM2012. Mótið er haldið 2. og 3. júní næstkomandi. Þá verður einnig boðið upp á opið mót í tölti og skeiðgreinum.
Skráningar fara fram á heimasíðu félagsins www.hringurdalvik.net og skal lokið fyrir miðvikudag 30.maí. kl 20:00.
Skráningargjald er eftirfarandi: Ungmenni og fullorðnir kr. 2.500 á fyrstu skráningu en kr. 2.000 á næstu skráningar. Börn og unglingar kr. 1.500 á fyrstu skráningu en kr. 1.000 á næstu. Skráningargjöld skulu greidd á reikning félagsins fyrir kl 12:00 föstudag 1.júní annars telst skráning ógild: Reikningsnúmer: 1177-26-175 - skýring - vinsamlegast sendir kvittun á hringurdalvik@hringurdalvik.net
Gæðingamót Hrings.
A-flokkur
B-flokkur
Barnaflokkur
Unglingar
Ungmenni
Opin keppni:
Tölt
100m skeið – Fljúgandi start
150m skeið
250m skeið