Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir þremur leikskólakennurum

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir þremur leikskólakennurum

Leikskólinn Krílakot auglýsir eftir 3 leikskólakennurum í 100% störf frá og með 13. ágúst 2024.
Leikskólinn Krílakot er 5 deilda leikskóli á Dalvík. Leikskólinn Krílakot er heilsueflandi leikskóli sem vinnu eftir aðferðum Uppeldi til ábyrgðar. Önnur verkefni eru Lubbi finnur málbein, Orðaleikur, Grænfáni, útikennsla og stærðfræði.

Gildi Krílakots eru Gleði – Sköpun – Þor og má kynna sér starf Krílakots hér.
Störf leikskólakennara
Helstu verkefni:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
  • Vinnur að faglegu starfi og samvinnu innan skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla á leikskólastigi æskileg.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Áhugi um fræðslu barna og velferð þeirra.
  • Stundvísi.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

  • Frír hádegismatur
  • Heilsustyrkur
  • Betri vinnutími
  • Lokað haust og vetrarfrí og einn dagur milli jóla og nýárs og er hluti af betri vinnutíma

Starfið hentar öllum kynjum. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi og er þá greitt samkvæmt viðkomandi kjarasamningi.

Ef umsækjendur uppfylla ekki menntunar- og hæfniskröfur áskilur leikskólastjóri sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsóknafrestur er til 10. júní 2024

Sótt er um starfið í gegnum Þjónustugátt Dalvíkurbyggðar. Með umsókn skal fylgja afrit af leyfisbréfi, ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið, stutt persónuleg kynning ásamt nöfnum umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar veitir: Ágústa Kristín Bjarnadóttir aðstoðarleikskólastjóri Krílakots í síma 460-4950 eða á netfangið agusta@dalvikurbyggd.is

Dalvíkurbyggð er tæplega 1900 manna sveitafélag við Eyjafjörð. Þar er blómlegt atvinnulíf, öflugt menningarlíf og aðstaða til íþróttaiðkunar framúrskarandi. Umhverfið er sérlega fjölskylduvænt og aðstæður til útivistar með besta móti.