Dalvíkurhöfn – Austur og Norðurgarður, raflagnir.
Hafnarsjóður Dalvíkurbyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir eru:
- Raflagnir og uppsetning rafbúnaðar í tvö rafbúnaðarhús.
- Ídráttur strengja í ídráttarrör.
- Uppsetning rafbúnar í tenglaskápa og möstur
Verkinu skal lokið eigi síðar en 22. september 2019.
Útboðsgögn verða afhent hjá Raftákni Glerárgötu 34 Akureyri og í afgreiðslu Ráðhússins á Dalvík frá og með þriðjudeginum 19. mars 2019.
Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. apríl 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.