Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur þann 6. febrúar næstkomandi. Dagurinn er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Í tilefni dagsins verður ýmislegt til gamans gert í leikskólum Dalvíkurbyggðar.
Myndband sýnt í Bergi
Myndband frá starfi í leikskólum Dalvíkurbyggðar; Kátakoti, Krílakoti og Kötlukoti, í tilefni af degi leikskólans og 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna 2015. Myndbandið byggir á hugmyndum barna um kynjahlutverk og einnig myndbrotum úr leik og starfi. Allir velkomnir í Berg kl. 10:30-14:00.
Kátakot
Börnin í Kátakoti syngja í Bergi kl. 10:30 og horfa á myndband að söng loknum. Foreldrar eru velkomnir.
Krílakot
Opið hús á Krílakoti frá kl. 14:00-16:00 - Allir velkomnir. Stöðvavinna og allir geta rölt á milli svæða og tekið þátt í starfinu.
Svæði í boði:
- Myndband frá starfi leikskólanna sýnt á Appelsínugula
- Hreyfing á Holi við Skýjaborg
- Stóru plastkubbarnir á Skýjaborg
- Tónlist/læsi og myndsköpun á Hólakoti
- Púsl og Söguskjóður á Skakkalandi
- Litlir legókubbar á Bleika svæði
- Perlur og Pinnar í Listasmiðju
Kaffi og meðlæti í boði foreldrafélagsins í salnum
Kötlukot
Foreldrar allra barna skólans og velunnarar eru sérstaklega boðnir í heimsókn þennan dag í Árskógarskóla kl. 12:30 þar sem deginum verður fagnað og myndbandið úr starfi leikskólanna sýnt.
Sjáumst vonandi sem flest!