Viltu kynnast nýju fólki og mæta í vinnuna þar sem enginn dagur er eins. Störf í félagsþjónustu er fjölbreytt og skemmtileg og snúast um fólk og samskipti.
Starfsmaður á heimili fyrir fatlaða III
Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingar við Íbúðakjarna/Skammtímavistun í Lokastíg sem er úrræði fyrir fatlaða einstaklinga með fjölþættan vanda. Unnið er á dag-, kvöld-, nætur og helgarvöktum. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Félagsþjónustan sér um og leggur metnað í að veita notendum fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að styðja við sjálfstæða búsetu og skapa notendum aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi á heimili sínu þrátt fyrir skerðingu á færni. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.
Helstu verkefni:
- Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta við íbúa (með mismikla stuðningsþörf), sem miðar að því að leiðbeina og aðstoða einstaklinga við athafnir daglegs lífs, heimilishald og dagleg störf varðandi húshald eftir því sem þörf krefur.
- Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni, innan og utan heimilis.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa og notendur Skammtímavistunar.
- Jákvæð og uppbyggileg samskipti við þjónustunotendur, aðstandendur og samstarfsfólk.
- Leiðbeina og aðstoða við atvinnu.
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
- Sveigjanleiki, hæfni og áhugi á að starfa með fólki og eiga í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð
- Geta til að vinna undir álagi og taka sjálfstæðar ákvarðanir
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur.
- Bílpróf
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfniskrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingum í störfin sem bera hag þjónustunotenda fyrir brjósti.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf um miðjan maí og geti unnið til ágústloka en nákvæmur starfstími er þó umsemjanlegur.
Við ráðningu er jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna. Vakin er athygli á að þörf er á fleiri körlum til starfa á verksviðinu. Greitt er samkv. kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda. Sótt er um rafrænt í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar.
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudagsins 9.apríl 2025
Upplýsingar gefur Þórhalla Franklín Karlsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar, á netfangið: tota@dalvikurbyggd.is, eða í síma 460-4900 og Hildur Birna Jónsdóttir forstöðumaður íbúðakjarna og skammtímavistunnar, á netfangið: hildurbj@dalvikurbyggd.is, eða í síma 460-4927.
Dalvíkurbyggð er sveitarfélag við utanverðan Eyjafjörð með metnaðarfulla framtíðarsýn og öflugt atvinnu- og menningarlíf. Umhverfið er öruggt og sérlega fjölskylduvænt með grunn- og leikskólum sem leggja meðal annars áherslu á virðingu og vellíðan.
Náttúrufegurð er mikil og aðstaða til íþróttaiðkunar og hvers kyns útivistar er framúrskarandi.