Tilkynning frá Veitum - Dalvík

Tilkynning frá Veitum - Dalvík

Kæru íbúar Dalvíkur,

Okkur hafa borist ábendingar um bragð af kalda vatninu í dag. Ekki er hægt að fá sýni greind í dag eða um helgina en sýni verður tekið strax á mánudagsmorgun og farið með í greiningu. Þar sem engar breytingar hafa verið gerðar í kerfum vatnsveitunnar teljum við að hlýnun og leysingar valdi þessu en vitum það ekki fyrir víst og hvetjum viðkvæma aðila til að sjóða vatnið ef gæta á fyllsta öryggis þar sem ekki er búið að taka sýni. Við byðjumst velvirðingar á þessu en teljum nauðsynlegt að upplýsa notendur um stöðu mála