Götusópun í Dalvíkurbyggð.

Götusópun í Dalvíkurbyggð.

Vorið er komið og einn af vorboðunum er farinn af stað. Hafin er vinna við götusópun í Dalvíkurbyggð og verður hún í gangi næstu daga. Allar götur, gangstéttar og göngustígar verða sópaðir og í kjölfarið háþrýstiþvegnir.

Íbúar eru beðnir um að fylgjast með þegar sópurinn kemur í þeirra götu og færa kyrrstæða bíla eða annað sem truflað getur ferð sópsins. Einnig er tilvalið að sópa af bílastæðum og út á götu áður en sópurinn lætur sjá sig.

Eigna- og framkvæmdadeild