Eigna- og framkvæmdadeild Dalvíkurbyggðar óskar eftir að ráða þrjá starfsmenn í 100% stöðu
flokksstjóra Vinnuskóla sumarið 2025. Starfsmenn starfa undir stjórn verkstjóra Vinuskóla og
deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar.
Starfstími er frá 20. maí til 15. ágúst 2025, en nákvæmur starfstími er þó umsemjanlegur.
Um er að ræða 100% starfshlutfall, en möguleiki er á minna hlutfalli eða vinnu hluta úr sumri.
Helstu verkefni:
- Vera leiðtogi og leiðbeinandi ungmenna í vinnuskólanum.
- Skipulagning og forgangsröðun verkefna vinnuskóla í samvinnu við verkstjóra og
- deildarstjóra.
- Eftirlit og umsjón með aðstöðu vinnuskóla.
- Eftirlit með tímaskráningu ungmenna.
- Tryggja öryggi sitt og ungmenna við störf.
- Umsjón og eftirlit með tækjum og verkfærum vinnuskóla.
- Vinna að fallegri og skemmtilegri Dalvíkurbyggð.
Hæfniskröfur:
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð samskipta- og skipulagshæfni.
- Áhugi og þekking á garðyrkju og umhirðu útisvæða er kostur.
- Reynsla af starfi með ungmennum æskileg, uppeldismenntun er kostur.
- Aldurstakmark er 18 ára.
- Stundvísi skilyrði.
- Áhugi og þekking á umhverfismálum er kostur.
- Bílpróf.
- Hreint sakavottorð.
Við ráðningu er jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við
áhugasama að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Greitt er samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2025.
Umsóknum um starfið skal fylgja ferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar, rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um
að sækja um starfið á
Þjónustugátt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
Allar nánari upplýsingar veitir Helga Íris Ingólfsdóttir deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar
Dalvíkurbyggðar í síma 853-0220 eða á netfangið: