Bíllausi dagurinn í Dalvíkurbyggð.

Bíllausi dagurinn í Dalvíkurbyggð.

Sunnudaginn 22.september n.k. verður alþjóðlegi bíllausi dagurinn og ætlum við í Dalvíkurbyggð að halda upp á hann.

Við hvetjum íbúa til þess að geyma einkabílinn heima og ganga eða hjóla þann dag.

kl.11:00 er svo hjólafjör fyrir alla fjölskylduna á hjólabrautinni hjá Gamla skóla, þar mun lögreglan hjóla með þeim sem vilja Böggvisstaðahringinn aftur að Gamla skóla þar sem boðið verður upp á grillaðar pylsur og safa.

Eftir hjólagleðina er svo frítt í sund á sunddeginum mikla sem er einmitt sama dag.

Hlökkum til þess að sjá ykkur!