Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar auglýsir hér með eftirtaldar skipulagslýsingar sbr. 30. gr. og 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Lokastígsreitur - deiliskipulag
Afmörkun skipulagssvæðis miðast við miðlínur aðliggjandi gatna: Böggvisbraut, Ægisgötu, Brimnesbraut og Karlsrauðatorg. Lækjarstígur og Lokastígur eru innan skipulagssvæðisins.
Ekki er stefnt að breytingum á núverandi lóðum og byggingum. Fjallað verður um svæðið sem heild og verða frekari þéttingarkostir á svæðinu teknir til skoðunar. Í skipulaginu verður m.a. gert ráð fyrir nýbyggingu fyrir fatlaða að Lokastíg 3.
Íþróttasvæði Dalvíkur - deiliskipulag og aðalskipulagsbreyting
Markmið deiliskipulagsins er að styrkja íþróttasvæðið í heild með stefnu fyrir framtíðar uppbyggingu. Gert verður ráð fyrir bættri aðstöðu og aðgengi. Stefnt er að breytingu á aðalskipulagi þar sem mörkum landnotkunarreita verður breytt.
-
Ofantaldar skipulagslýsingar verða til sýnis í Ráðhúsi Dalvíkurbyggðar frá mánudeginum 2. október nk. til og með miðvikudagsins 18. október 2017 og á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, www.dalvikurbyggd.is.
Með gerð og kynningu lýsingar í upphafi skipulagsvinnu gefst almenningi og umsagnaraðilum kostur á að leggja fram sjónarmið og ábendingar sem að gagni gætu komið í skipulagsvinnunni.
Ábendingar vegna lýsinga þessara skulu sendar á skrifstofu Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu, 620 Dalvík eða með tölvupósti til skipulags- og byggingarfulltrúa, borkur@dalvikurbyggd.is. Frestur til að skila inn ábendingum er til miðvikudagsins 18. október 2017.
Lokastígsreitur á Dalvík, deiliskipulag, skipulagslýsing
Íþróttasvæði Dalvíkur, drög að breytingu á aðalskipulagi og deiliskipulagi, skipulagslýsing