Þorvaldsdalsá – vatnstökusvæði og vatnslögn
Skipulagslýsing fyrir breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020
Dalvíkurbyggð hefur hafið vinnu við breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um vatnstökusvæði á áreyrum Þorvaldsdalsár og um 1,3 km langa vatnslögn að lóð nr. 31 við Öldugötu á Árskógssandi .
Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.
Lýsinguna má nálgast hér og jafnframt á Skipulagsgátt: skipulagsgatt.is undir máli nr. 207/2025.
Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagslýsinguna og senda inn ábendingar, annað hvort með tölvupósti á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í gegnum Skipulagsgátt.
Frestur til að senda inn ábendingar er til 10.mars 2025.
Skipulagsfulltrúi