Selárland og Sandvík á Hauganesi
Skipulagslýsing fyrir breytingu á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag fyrir afþreyingar- og ferðamannasvæði
Dalvíkurbyggð hefur hafið vinnu við breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um uppbyggingu afþreyingar- og ferðamannasvæðis við Hauganes
Samhliða verður unnið nýtt deiliskipulag fyrir svæðið í samræmi við tillögur teiknistofunnar NordicArch.
Nú liggur fyrir skipulagslýsing þar sem fram kemur hvaða áherslur sveitarstjórn hefur við skipulagsvinnuna, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli og hvernig kynningu og samráði verður háttað.
Lýsinguna má nálgast hér og á Skipulagsgátt: www.skipulagsgatt.is
Íbúar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér skipulagslýsinguna og senda inn ábendingar, annað hvort með tölvupósti á dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is, bréfleiðis til framkvæmdasviðs í Ráðhúsi Dalvíkur eða í gegnum Skipulagsgátt.
Frestur til að senda inn ábendingar er til 7.apríl 2025.
Skipulagsfulltrúi