Dalvíkurbyggð hefur þá skemmtilegu og viðeigandi hefð um hver jól og áramót, að færa þeim börnum sem fæðast á árinu svokallaða nýburagjöf. Eftir því sem mér er sagt þá var það Kristján Þór Júlíusson, sem var bæjarstjóri frá 1986-1994, sem byrjaði á þessari hefð og hefur hún fest sig í sessi hér í sveitarfélaginu.
Það er fagnaðarefni að í ár eru það 27 gjafir sem ég fæ þann heiður að afhenda þeim börnum sem fædd eru á þessu ári. Það er talsverð fjölgun barna á milli ára, þar sem fyrsta árið mitt 2022 fór ég með gjafir til 17 barna og 18 barna í fyrra.
Megi þessi þróun halda áfram.
Gleðilega hátíð!