Alþingiskosningar 30. nóvember 2024

Alþingiskosningar 30. nóvember 2024

Alþingiskosningar 30. nóvember 2024

Kjörskrá vegna Alþingiskosninga 30. nóvember n.k. liggur frammi almenningi til sýnis frá 8. nóvember fram á kjördag í þjónustuveri Skrifstofa Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00 nema á föstudögum frá kl. 10:00 – 12:00.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Viðmiðunardagur kjörskrár er 29. október sl., en við þann dag er miðað hvar kjósendur eru skráðir á kjörskrá.
Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá;
https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/althingiskosningar-2024/
Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands.
Kjósendum er einnig bent vefinn https://island.is/v/althingiskosningar-2024 þar sem er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.

Sveitarstjórinn í Dalvíkurbyggð,
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir