Kosning á íþróttamanni ársins 2022

Kosning á íþróttamanni ársins 2022

Samkvæmt reglum Dalvíkurbyggðar um kjör á íþróttamanni ársins skal fara fram íbúakosning sem gildir á móti kosningu aðal- og varamanna í íþrótta- og æskulýðsráði. Kosning fer fram með þeim hætti að allir sem eru orðnir 15 ára geta kosið og er það gert í gegnum Mína Dalvíkurbyggð.

Þú byrjar á að kynna þér upplýsingar um tilnefnda aðila hér, ferð svo inn á íbúagátt Dalvíkurbyggðar og kýst þann aðila sem þú telur eiga skilið að hljóta titilinn „íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2022“., Þú kemst inn á íbúagáttina með því að smella hér.

Hægt verður að kjósa um íþróttamann ársins til og með sunnudagsins 8. janúar 2023.

Samanlögð kosning íbúa og fulltrúa í íþrótta- og æskulýðsráði mun svo ráða úrslitum um það hver verður kjörinn. Reglur um kjör á íþróttamanni ársins er að finna hér.

Kjöri á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar verður lýst fimmtudaginn 12. janúar við hátíðlega athöfn í Bergi kl. 16:30. Á sama tíma verða afhentar viðurkenningar úr afreks- og styrktarsjóði. Gert er ráð fyrir að athöfnin taki rúma klukkustund.

Tilnefningar:

Anna Kristín Friðriksdóttir - Hestar
Elín Björk Unnarsdóttir - Sund
Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir - Blak
Esther Ösp Birkisdóttir - Skíði
Marsibil Sigurðardóttir - Golf
Þröstur Mikael Jónasson - Knattspyrna