Starf launafulltrúa Dalvíkurbyggðar laust til umsóknar

Launafulltrúi

Dalvíkurbyggð óskar eftir að ráða launafulltrúa. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfssvið

  • Launavinnsla og frágangur launa
  • Launaröðun og launagreiðslur skv. kjara- og ráðningarsamningum
  • Upplýsingagjöf varðandi launavinnslu og kjaratengd mál
  • Ýmis umsjón og utanumhald í tengslum við starfsmannakerfi og upplýsingar
  • Úrvinnsla gagna
  • Aðstoð og ráðgjöf til stjórnenda
  • Vinnur að gerð launaáætlana
  • Önnur verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Háskólamenntun kostur , s.s. á sviði viðskiptafræði
  • Þekking og reynsla af launavinnslu og/eða bókhaldi æskileg
  • Góð þekking á upplýsingatækni
  • Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag og samkvæmt Starfsmannastefnu Dalvíkurbyggðar. Í samræmi við jafnréttisáætlun Dalvíkurbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.

Umsjón með starfinu hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Jónína Guðmundsdóttir (jonina.gudmundsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júlí nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðningum, http://www.capacent.is/