Hreystiklúbburinn hefst í dag 2.sept kl 18:45 í íþróttahúsinu

Hreystiklúbburinn hefst í dag 2.sept kl 18:45 í íþróttahúsinu

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar bíður uppá hreystiklúbb einu sinni í viku í vetur fyrir fatlaða notendur 18 ára og eldri líkt og síðasta vetur.

Kennari er Valdís Guðbrandsdóttir iðjuþjálfi.

Hreystiklúbburinn hefst í dag 2.september kl 18:45-19:45 í íþróttahúsi Dalvíkurbyggðar.

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar hvetur fatlaða notendur 18 ára og eldri til að sækja klúbbinn. Hann er alveg að kostnaðarlausu fyrir iðkendur. Boðið er uppá ýmsa afþreyingu í Hreystiklúbbnum og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi og svo er líka bara gaman að koma og hittast og spjalla saman.

Félagsþjónusta Dalvíkurbyggðar.