Þriðjudaginn 7. nóvember 2017 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar til að huga að veðurhorfum í þessum mánuði. Spágildi síðustu veðurspár var að vanda vel viðunandi.
Nýtt tungl kviknar þann 18. nóv. í SA kl. 11:42 og er það laugardagstungl. Þess má til gamans geta að 18. nóvember er fæðingardagur Jóhanns heitins Daníelssonar, sem var virkur félagi í Veðurklúbbnum á Dalbæ og auk þess áhugamaður um tunglkomur og tunglsskin.
Reiknað er með að veðurfar i nóvember verði svipað og verið hefur, þó örlítið kaldara, en ekki er reiknað með mikilli snjókomu. Vindáttir verða breytilegar.
Samandregið má ætla að heilt yfir verði veður í nóvember ágætt, þó svo að frosthörkur geti lítillega gert vart við sig.
Veðurvísa okt. / nóv..
Í október hefst skólinn
að bjóða börnum heim.
Í nóvember er náttlangt
í norðurljósageym.
Með góðri kveðju,
Veðurklúbburinn á Dalbæ