Veðurspá fyrir júní 2010
Klúppfélagar voru mjög sáttir við maíspána og töldu að hún hefði í meginatriðum gengið eftir.
Júnítungl kviknar 12. júní kl. 11:15 í súðaustri á laugardegi. Júní mánuður verður heldur skárri en maí. Fullt tungl verður fimmtudaginn 27. júní og mun þá hlýna ofurlítið, en engin almennilegur hiti.
“ Nú er úti nepja köld
og neitar bara að hopa.
Sé ég marga mey og höld
meður sultardropa. “
“ Skartar lítið lauf á viði
og leikur sér í golunni.
Betra er þó að fá í friði
fast að sitja í holunni. “
Með sumarkveðju,
Fimmtudagur 25. maí 2010
Veðurklúbburinn á Dalbæ.