Stofnaður hefur verið nýr sjóður, Uppbyggingasjóður Norðurlands eystra. Sjóðurinn er hluti af samningi um Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019 sem undirritaður var í febrúar sl. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og tekur við hlutverki Menningarráðs Eyþings, Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og Vaxtarsamnings Norðausturlands og veitir verkefnastyrki til menningarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála.
Í ár lítur uppbyggingasjóður sérstaklega til verkefna sem jafna stöðu kynjanna og aldurshópa á svæðinu. Auk þess hafa þær umsóknir forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna skilyrða.
Á sviði menningar:
Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra
• Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista
• Verkefni sem fela í sér listsköpun fólks á aldrinum 18-25 ára
• Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviðið menningar og lista
Á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar:
• Verkefni sem stuðla að nýtingu auðlinda svæðisins til atvinnusköpunar
• Verkefni sem til þess eru fallin að auka fjölbreytni atvinnutækifæra
• Verkefni sem stuðla að samstarfi atvinnulífs, háskóla og þekkingarstofnana
• Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun
Umsóknum skal skilað rafrænt til uppbyggingarsjóðs á netfangið uppbygging@eything.is á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má hér. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí.
Tilkynnt verður um úthlutun í júní. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verklagsreglur uppbyggingarsjóðs sem eru aðgengilegar hér.
Nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra veita:
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menning@eything.is sími 464 9935
Baldvin Valdimarsson baldvin@afe.is sími 460 5701
Reinhard Reynisson reinhard@atthing.is 464 0415
Ari Páll Pálsson aripall@atthing.is sími 464 0415
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið uppbygging@eything.is