Fannar Gíslason, Katrín Sigurjónsdóttir og Björn Friðþjófsson
Í morgun var undirritaður verksamningur milli Hafnarsjóðs Dalvíkurbyggðar og Tréverk ehf. vegna framkvæmda við Dalvíkurhöfn – Austurgarður, þekja og lagnir. Veitu-og hafnaráð samþykkti á fundi sínum þann 3.apríl, að ganga til samninga við Tréverk að undangengnu útboði í verkið.
Helstu verkþættir eru:
Raflagnir og uppsetning rafbúnaðar í tvö rafbúnaðarhús.
Ídráttur strengja í ídráttarrör.
Uppsetning rafbúnar í tenglaskápa og möstur
Verkið mun hefjast á næstu dögum en áætluð verklok eru í byrjun september 2019.
Á mynd með frétt má sjá f.v.:
Fannar Gíslason - verkefnisstjóri hjá Vegagerðinni
Katrín Sigurjónsdóttir - sveitarstjóri í Dalvíkurbyggð
Björn Friðþjófsson - framkvæmdastjóri Tréverk ehf.