UMSE náði í 3 gull, 4 silfur og 8 brons á Meistaramóti Íslands 11-14 ára í frjálsum íþróttum, sem fram fór á dögunum.
Macej Magnús Dalvík vann silfur í 100m, silfur í kúlu og brons í hástökki
Ólöf Rún Júlíusdóttir Reyni fékk brons í 4x100m
Kara Gautadóttir Ólafsfirði fékk brons í 4x100m
Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir Grenivík fékk brons í 4x100m , silfur í langstökki
Arlinda Fejzulahi Reyni fékk brons í 4x100m og brons í spjóti
Þóra Björk Stefánsdóttir Smáranum vann gull í spjóti og silfur í kúlu
Guðmundur Smári Daníelsson Samherjum vann brons í spjótkasti
Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir vann brons í kúlu
Karl Vernharð Dalvík gull í spjóti
Þorri Mar Þórisson vann gull í hástökki
Elín Brá Friðriksdóttir Dalvík og Marín Líf Gautadóttir Ólafsfirði urðu jafnar í 3. sæti ( brons ) í hástökki 11 ára