Umsagnir frá sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar
Í sameiginlegum potti í nýframkvæmdir við vegakerfið, s.s. reiðvegir, héraðsvegir, breikkun brúa, smábrýr, girðingar o.s.frv. eru umtalsverðar fjárhæðir á árunum 2019-2033. Framkvæmdir undir 1.000 milj.kr. eru ekki skilgreindar sérstaklega. Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar leggur þunga áherslu á að gerð verði langtíma fjárhagsáætlun fyrir þessa flokka í samvinnu við sveitarstjórnir landsins. Þannig liggi ljóst fyrir, með góðum fyrirvara, hvaða verkefni verður ráðist í árlega á hverjum stað.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar lýsir furðu sinni á að Akureyrarflugvöllur fái ekki meira vægi í samgönguáætlun og meiri uppbyggingu sem alþjóðaflugvöllur. Beintenging flugs erlendis frá við Norðursvæði er nauðsynleg, bæði hvað varðar ferðamenn og ekki síður vegna flutnings ferskvöru frá svæðinu á markaði erlendis.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar lýsir einnig yfir vonbrigðum sínum með að ekki er gert ráð fyrir að eftir árið 2023 sé brugðist við uppsafnaðri viðhaldsþörf hafnamannvirkja innan Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.